Bílskúrshurðaopnari
Mótorar
Við bjóðum uppá bílskúrshurðaopnara frá tveimur framleiðendum en Kapu-Ker framleiðandi hurðanna okkar hóf framleiðslu á sínum eigin mótorum sem bera nafnið MilnerTore og hafa reynst vel. Nú þegar eru hurðar hérlendis með MilnerTore mótorum og hafa reynst vel. Hugmyndin um framleiðslu eigin mótora koma þegar að eigendur fyrirtækisins sáu að það væri hægt að búa til gæðamótora sem væri hægt að bjóða á töluvert hagstæðari verðum.
MilnerTore bílskúrshurðaopnari

Upplýsingar um MilnerTore
- 2 fjarstýringar
- Rás fjarstýringar: 4
- hægt að fá með 800, 1200 og 1800 Nm, öflugasti mótorinn ræður við hurðir sem eru allt að 20m2 að flatarmáli
- Nútímalegt útlit með blárri led lýsingu.
- Auðveldur í forritun og uppsetningu
- Hannaður af reynslumiklum bílskúrshurðaframleiðanda
- Auðvelt að fá varahluti
- 2 stk. 4-rása fjarstýringar fylgja
Sommer bílskúrshurðaopnari
Sommer er leiðandi framleiðandi í bílskúrshurðamótorum, þeir sem vilja eyða aðeins meira og fá vöru sem hefur verið á markaðnum í tugi ára og hefur sannað sig um alla Evrópu, Sommer mótorarnir hafa reynst gríðarlega vel.
Sommer Aperto A550l og A800Xl

Upplýsingar um Summer Aperto
- 1 fjarstýring fylgir
- Rás fjarstýringar: 2
- hægt að fá með 550nm (upp að 9m2 hurð) og 800nm mótorum upp að 13m2 hurð)
- Hægt að fá smartstýringu
- Hentar vel þar sem lægra er til lofts þar sem hann tekur lítið pláss
- Sjálfvirk aflstýring, mótorinn notar ekki meira afl og þar með orku en þarf til að lyfta hurðinni
- Hægir á sér við opnun og lokun hurðar
- Hljóðlátur mótor sem er framleiddur með orkuspörun í huga
Sommer Base+ 800 og 1100

Upplýsingar um Sommer Base
- 1 fjarstýring fylgir með
- Rás fjarstýringar: 4
- hægt að fá með 800 Nm (upp að 15m2 hurðum), og 1100 Nm (upp að 20m2 hurðum)
- Jafnframt til fyrir iðnaðarhurðir
- Renna úr sínki
- Hljóðlátur
- Gríðarlega öflugur mótor sem er fyrir þá sem setja kröfur
- Hægt að fá smart stýringu